Hætti við að fara í bloggbindindi þangað til að einhver annar
bloggar, en það er einungis vegna þess að það er svo gott veður og
ég er svo glöð. Helga mín sorry þú verður bara að lesa röflið í mér
einu sinni en.
Skrítið hvernig sólin hefur áhrif á sálina, held satt best að segja
að ég hafi aldrei verið í vondu skapi þegar að sólin skín. Hér koma
nokkrar ástæður fyrir því að sólardagar eru betri en aðrir
dagar:
-Allir eru svo glaðir og jákvæðir í sólinni
-sólinn gerir það að verkum að maður lítur betur út
-Gaman er að kaupa ís í sólinni
-Gaman er að fara niður í bæ og labba um í góðu veðri
-Gaman er að sitja úti á kaffihúsi með kaldan bjór án þess að verða
kalt
-Ég þarf ekki að ganga um í sokkum
-ég get farið upp í sumarbústað á bátinn og veitt
-ég get fengið mér gönguferð upp í sveit
-á sólardögum er yndislegt að fara í sund og flatmaga á
sundlaugarbakkanum án þess að verða kalt
-Hægt er að fara á djammið í bol og jakka, og sleppt við að halda á
peysum þegar inn á staðinn er komið.
-og ekki má nú gleyma að geta sofið úti í hengirúmi heilu og hálfu
dagana
Svona gæti ég endalaust haldið áfram... Vildi óska þess að sumarið
væri jafn langt og veturinn, og veturinn jafn langur og sumarið!!!
Ummm dásemdar líf væri það!!